[Texti fyrir "Rauðar Rósir Fölna"]
[Vísa 1]
Keyrðum af stað
Ungt ástfangið par
Með draumaævintýraþrá
Þú mér við hlið
Allt sem ég þurfti
Til að líta upp og gleyma mér í smá
[Fyrir-Viðlag]
Ég fór aðra leið og nú
Rata ég ekki aftur heim í hús
En útsýnið dregur mig lengra út
Ég veit ekki hvort ég sé týnd eða á réttum stað
[Viðlag]
Af því að þú varst alltaf miðpunkturinn
Sá sem ég horfði til í myrkri
Þú varst ljósið sem ég þurfti
Því þú varst allur alheimurinn
En jafnvel rauðar rósir fölna
Eins og bjartir dagar kvölda blómið mitt
[Vísa 2]
Hvað varð um drauminn
Að sigra heiminn
Við tvö á móti straumnum
Hvarflaði af þér að berjast fyrir mér
Var auðveldara að labba bara burt
[Fyrir-Viðlag]
En kannski var ég sem fann
Eitthvað að öllu og leitaði að
Ástæðum til þess að brenna allt
Ég vissi ekki hvort ég var týnd eða á réttum stað
[Viðlag]
Af því að þú varst alltaf miðpunkturinn
Sá sem ég horfði til í myrkri
Þú varst ljósið sem ég þurfti
Því þú varst allur alheimurinn
En jafnvel rauðar rósir fölna
Eins og bjartir dagar kvölda blómið mitt
Lyrics provided by LRCLIB